List og hjól
Bátar í Burnham - John Tookey - vatnslitir á pappír |
Er að mála svolítið þessa dagana en það eru flest málverk sem á að gefa og því vil ég ekki birta myndir af afrakstrinum. Síðan er ég að gera merki fyrir Píslargönguna, annað árið í röð. Páskadagskrá í Mývatnssveit er í skipulagningu fyrir Gjallanda. Ljóðauppákomur, málverkasýningar og fleira. Mitt fyrsta útilistaverk í smíðum og verður afhjúpað í vor. Hvað er að gerast?
Er aðeins byrjaður að hreyfa á mér rassgatið aftur. Tók skriðsundsæfingu á föstudaginn og hjólaði í Brekku í gær eftir að hafa verið á skíðum með Guðrúnu og Brynleifi. Hjólreiðakeppni í vændum á ísnum. Kannski verður maður með.
Þar sem ég birti ekkert krot eftir mig í dag langar mig að birta eitthvað sem ég vildi að ég hefði málað. Þennan stíl langar mig að yfirfæra yfir á mývetnska náttúru og sveitabæi.
Ummæli