Málverk

Fjallamynd eftir Guðmund Ármann

Ég ber mikla virðingu fyrir þeim sem fara út í náttúruna og mála myndir. Það er erfitt, það er gaman og það er gefandi. Menn ná betur að fanga náttúruna og koma henni til skila. Oft gerist líka eitthvað óvænt- jafnvel það sem stundum er nefnt "happy accident" og gefur myndunum karakter.

 Fór í heimsókn í kvöld þar sem bar að líta 3 fallegar vatnslitamyndir eftir Guðmund Ármann á Akureyri. Hann málar mikið úti og blandar því jafnvel við stangveiði. Hvílir sig á stönginni með því að mála. Tekur sér svo pásu frá málningunni og fer að veiða. Er til eitthvað gáfulegra?

Ég viðurkenni fúslega að ég er misjafnlega hrifinn af myndunum hans (eðlilega) en ég hef alltaf svolítið gaman að þessum "economíska" stíl. Hér er engu ofaukið. Fjallið í fjarska er í raun bara nokkur strik. Þetta eru myndir sem gaman er að skoða og þær þurfa fjarlægð til að njóta sín.

Miðað við áferðina á myndinni ætla ég að giska á að það hafi ekki verið mjög hlýtt. Það geri ég bara til að þykjast vera gáfulegur

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap