Endurnæring

Nú er ég byrjaður á síðustu bók Einars Kára í Sturlungafjórleiknum. Ég er afskaplega hrifinn af þessum bókum þó Skáld sé svo sem ekkert sérstaklega skemmtileg. Mér finnst hún vera hálfgert Bonus Features. Fyllir uppí og bætir við fyrri 2 bækurnar. Ég er kominn of stutt í Skálmöld til að geta dæmt um hana en hún grípur strax á fyrsta kafla.

Eitt af því skemmtilega við að lesa þessar bækur er að spegla samtímann í tíma Sturlunga. Það hefur lítið breyst. Höfðingjar sitja landið og skipta því á milli sín. Nú drepa þeir bara ekki hvorn annan. Því miður.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap