Gleðileg jól
Er að verða heldur gamall fyrir þetta jólastúss. Búinn að vera með í baki og nú bætist við brjóstsviði og síðþreyta. Sennilega vegna sykuráts og of mikillar fitu. Fáir gestir hafa komið til okkar en ég þoli hvort sem er frekar illa langar heimsóknir. Fengum gesti í morgun en ég lét mig fljótlega hverfa upp og lagði mig. Vaknaði við helvítis smáfuglana. Hafði mig svo út og reyndi að hylja fuglamatinn sem nágrannarnir höfðu sett út með snjó. Þurfum að fara að fá okkur kött.
Ætlaði að mála eitthvað um jólin en annað augað nær illa að fókusera í birtunni í vinnuherberginu. Það er þessi sparpera í loftinu sem hefur svo skrítið litróf. Þegar þetta blandast svo við suðið í ofninum dregur það úr mér allan mátt og mig langar ekkert til að mála. Ef það gerist birti ég eitthvað. Gleðileg jól

Ummæli