Karl sem málar konur
Litla gatan - c. 1657 - 1661 |
Johannes, Jan or Johan Vermeer (Dutch: [joˈɦɑnəs jɑn vərˈmeːr]; 1632 – December 1675) var hollenskur málari. Eitt af því sem er heillandi við hann er hversu lítið er vitað um hann. Hvar hann lærði, hverjir kenndu honum eða höfðu áhrif á hann- þetta er mest allt á huldu.
Vermeer málaði að mestu hversdagslega hluti og voru konur við dagleg störf í aðalhlutverkum. Yfir þeim hvílir einhver einstök ró og fegurð. Vermeer var ekki afkastamikill og eftir hann liggja ekki nema rétt um 37 verk ef mér telst rétt til. Hann skildi fjölskylduna því eftir í skuldum þegar hann féll frá aðeins 43 ára gamall.
Hann féll í gleymskunnar dá um langt skeið en seinna meir var farið að dusta rykið af verkum hans og safna saman í bók. Nú er hann ávallt talinn vera einn af hollensku meisturnum.
Verkið hér að ofan heitir Litla gatan og hefur af mörgum verið lýst sem hinu dæmigerða Hollandi þess tíma. Yfir götunni er mikil ró og áhorfandann langar til að staldra þarna við. Til að ljá myndinni ljóðrænt yfirbragð tók hann sér að öllum líkindum skáldaleyfi og bætti rauða hleranum inn í seinna. Það er hann sem "gerir" myndina. Prufið nú að halda puttanum yfir honum og sjáið hvað gerist.
Þetta er það eitt af því dásamega við listina. Að geta breytt byggingum og litum eftir því sem manni sýnist. Færa til formin og láta þau passa betur- allt fyrir myndina. Meikar stærð blágrænu hleranna einhver sens? Þeir opnast fyrir hurðirnar.
Kveðja, Bjarni
Ummæli