Hjólatúr á nýja hjólinu

Túr tekinn í rólegheitum- um 15 km á ca. 1,5 tímum.
Fór að heiman, meðfram Stórugjá, gegnum hraunið í Kambinum. Slóðar-hraun-Hverfjall-Jarðbaðshólar-meiri slóðar- meira hraun. Almáttugur ..... ég á ekki til aukatekið orð yfir þessu hjóli. 

Ég hef enga reynslu í fjallahjólamennsku og því vissi ég ekkert við hverju ég ætti að búast varðandi þetta hjól. Það er hreint ótrúlegt hversu auðveldlega maður líður um móa, mela, hraun og slóða á þessu. Fjöðrun að framan og aftan gerir það að verkum að manni finnst maður fljóta yfir landinu. Hjólið klifrar líka mjög vel og á grófum nagladekkjunum lætur maður vaða upp brekkur sem manni hefði sjaldan eða aldrei dottið í hug að fara á hjóli. Í stuttu máli má segja að manni séu allar leiðir færar.

Sem nýliða í fjallahjólamennsku finnst mér munurinn á þessu og því að vera á götuhjóli svipaður og munurinn á því að hlaupa á malbiki og að hlaupa úti í náttúrunni. Þetta er mikið meira frelsi og mikið skemmtilegra. Fyrir mig allavega. Maður situr líka uppréttari og mér finnst þetta á einhvern hátt "eðlilegra" fyrir líkamann en að húka fram á hrútastýri og horfa ofan í malbikið. Þetta er í raun ekki sami hluturinn.


Fákurinn
Ég hef aðeins yfir einu að kvarta og það eru gírarnir. Keðjan hefur farið 2svar af og það kemur fyrir að skiptingin virkar ekki um leið og ég ýti. Mér er sagt að þetta lagist oft við notkun og sennilega gott að láta "fínstilla" það eftir nokkur hundruð kílómetra. Vírarnir þurfa aðeins að strekkjast og ganga til. Að öðru leiti hef ég ekkert við þetta að athuga enda ekki hundsvit á hjólum. Þetta bara svínvirkar og heldur manni brosandi.


Við "gamla" lónið
Nú er snjór í kortunum og kannski var þetta síðasta ferðin bili. Hver veit. Ég er samt á nöglum og ætti því alveg að geta druslast eitthvað í vetur. Það getur bara verið svo djöfull napurt að vera á hjóli í miklu frosti. En maður er farinn að skipuleggja næsta sumar. Nokkrar leiðir sem ég er með bakvið eyrað:
  1. Niður í gegnum Búrfellshraun
  2. Gæsafjöll
  3. Engidalur
  4. Grænavatn-Suðurárbotnar-Svartárkot
  5. Grænavatn-Suðurárbotnar-Heilagsdalur-Mývatn
  6. Jökulsárgljúfur
  7. Seljahjallagil (kannski í vetur) 
  8. Laxárdalur
  9. Grímsstaðir á Fjöllum til Vopnafjarðar
Borhola í Bjarnarflagi
Um hjólið:
Specialized Camber FSR 29 (2015)
Kríahjól - Grandagarður 7
Verð: um 300 kall (HEI..... hvað kostar að fara og hlaupa í útlöndum eða fara á tónleika?)

Ég vil að lokum vara fólk við að prófa svona alvöru fjallahjól því það eru sennilega góðar líkur á því að verða algerlega heltekinn af þessu. Ég held að þetta sé sport sem henti öllum og það er alveg hægt að gera þetta á sínum forsendum. Það er enginn að neyða mann til að dúndra niður brattar brekkur eða gera eitthvað sem maður ekki vill. Ég hlakka t.d til setja málaradótið og kaffibrúsa í bakpoka næsta sumar og halda til fjalla. Hreyfing, útivera og myndlist í sama pakka. Er hægt að hugsa sér eitthvað betra?

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap