Hjól
Ég held ég þurfi endanlega að sætta mig við að geta ekki hlaupið. Seldi hólið mitt í vor, sá mikið eftir því, en er að fjárfesta í nýju. Það get ég notað eitthvað í vetur þegar veður leyfir og svo get ég ekki beðið eftir að hjóla hér um fjöll og fyrnindi næsta sumar. Langar t.d að fara úr þorpinu, upp í Kröflu og niður Dalfjall. Hjóla í gegnum Búrfellshraun. Upp í Bláhvamm. Gæsafjöll. Grænavatn - Suðurárbotnar - Bárðadalur. Stöng niður í Bárðadal. Það er víst af nógu að taka.
Hjólið er Specialized Camber FSR 29 og á að vera fínt byrjendahjól í fjallahjólamennsku. Mitt verður reyndar með grænu letri og "skreytingum", ekki hvítum. Nú get ég ekki beðið
Kveðja, Bjarni
Hjólið er Specialized Camber FSR 29 og á að vera fínt byrjendahjól í fjallahjólamennsku. Mitt verður reyndar með grænu letri og "skreytingum", ekki hvítum. Nú get ég ekki beðið
Kveðja, Bjarni
Ummæli