Eitthvað hef ég nú málað síðan síðasta mynd fór inn. Eina aðra mynd gerði ég af ökrum. Hún fór út um þúfur. Síðan er ég að vinna að mynd sem á að vera gjöf og því birti ég hana ekki. Að lokum eru fjórar í römmun og svo verður held ég smá sýning fljótlega.

Hef aðeins verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að taka þátt í meistaramánuði. Ég þoli ekki svona fyrirbæri og eina ástæðan fyrir því að ég tæki þátt væri að láta aðra líta illa út. Taka þetta alla leið. Bara borða kjöt, fisk, baunir, hnetur, fræ, grænmeti og ávexti. Engar mjólkurvörur, hveiti, kornmeti eða sykur. Ekkert Feisbúk. Hreyfa sig alla daga. Vakna alltaf kl. 07 og gera góðverk einu sinni í viku.

Annars eru 2 atriði tengd mat sem ég hef verið að velta svolítið fyrir mér. Klisjur sem við höfum heyrt á síðustu árum varðandi hvað og hvernig við eigum að troða framan í fitug smettin á okkur.


  1. Að borða mikið prótein.
  2. Að borða 6 máltíðir á dag

Án þess að vera með neinar greinar fyrir framan mig þori ég næstum að fullyrða að við þurfum í raun ekki svo mikið prótein. Man ekki tölurnar en minnir að við séum að tala um rúmlega 50 gr fyrir fullorðinn karlmann. Það uppfyllum við með ca. 150 gr sneið af nautakjöti. Síðan er það allt annað prótein sem við innbyrðum yfir daginn, mjólk, brauð, hnetur, álegg, egg og allt það. Við fitnum minna af próteinríkri fæðu (kjöt, fisk, hnetum), ég veit það alveg. Fyrir því eru ýmsar ástæður og sú stærsta sennilega að þetta hefur ekki mikil áhrif á blóðsykurinn. En lausnin felst ekki endilega í að fara að borða fullt af próteini, heldur öllu heldur borða minna af hinu draslinu, sérstaklega kolvetnum.

Varðandi lyftingar; minnir að ég hafi lært í lífeðlisfræði að meðalmaður hefði gott af því að fá ca. 6 gr af próteini eftir æfingar- restina nýtir hann ekki. Það jafngildir einu og hálfu hænueggi. Sumir gúffa samt í sig 50 gr. af próteini í duftformi. Ég veit að rannsóknir sýna að þeir sem borða prótein eftir æfingar ná betri árangri en það er bara svo lítið að það skiptir ekki meðalmannin neinu máli. Harðfiskbiti og djús væri t.d. alveg fínt.

Borða 6 máltíðir á dag?? Við höfum verið að þróast frá öpum síðustu 5- 7 milljón árin. Hversu líklegt er það, að 6 máltíðir sé einhver lykiltala? Ég nenni heldur ekki núna að kafa í einhvern litteratúr en ég er viss um að þetta verður skotið niður með tímanum. Að sulla í mat allan daginn og keyra upp insúlín, sem skutlar sykri inn í frumurnar til nýmyndunar fitu? Þetta hljómar ekki gáfulega. Síðan er líka mjög líklegt að maður missi alveg yfirsýn yfir það sem maður er búinn að borða.

Alltaf sama niðurstaða:


  1. Borða mat (matur kemur ekki úr baukum og túpum)
  2. Borða minna
  3. Lifðu eins og manneskja sem tekur bætiefni (slepptu svo bætiefnunum)
En nú er ég kominn töluvert langt frá málverkapælingum.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap