129

Mynd frá í gær. Það er svo merkilegt, að þegar maður heldur að maður sé að ná tökum á þessu, kemur alltaf smá bakslag. Ætli þetta sé ekki svona eins og klassíska 2 skref áfram, 1 afturábak- dæmið.

Svindlaði reyndar pínu núna á þessari mynd. Gerði bara himininn í gærkvöldi en bætti svo húsunum undir í dag. Teiknaði reyndar eitthvað meira í gær en það er ekki birtingarhæft. Guðrún var að koma heim frá Grænlandi, ég var að knúsa hana. Hólmar og sker í lagi á þessu verki en húsin og báturinn eru frekar vond. Himininn reyndar líka þegar maður er með myndina fyrir framan sig. Jæja það gengur betur næst.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap