Það er langt síðan ég hef tjáð mig hér í orðum, bara strik og klessur. Einhvern veginn er alveg nóg að mála  bara eða teikna, maður hefur ekki tíma í meira. Annars væri ég alveg til í að skrifa bara og mála allan daginn núna. Það er einhver sköpunarþörf að brjótast út í mér á gamals aldri. Hún hefur kannski alltaf verið til staðar, bara verið bæld og brotist út í einhverju rugli. Hljómar kannski eins og einhver klisja. Klukkutími til tveir í Gamla fjósinu með pensil, olíulampa, kaffi og Rás 1 jarðtengja mig.

Í vinnu minni síðustu ár, í hinum oft ferkanntaða vísindaheimi,  braust þessi þörf út í að skapa rannsóknarverkefni. Verkefni sem ég hafði svo hvorki orku né eirð í mér til að fylgja eftir og klára. Fyrir mér var ánægjan fólgin í að fá hugmyndina, teikna hana upp og skapa verkefnið, ekki ósvipað og að mála mynd eða skrifa blogg. Reyndar hafði ég líka mikla ánægju af samskiptum við fólk í tengslum við öll þessi verkefni. Í vinnu minni sem forstöðumaður ÍMS fæ ég meiri útrás fyrir sköpun. Setja upp minni og styttri námskeið og uppákomur, breyta og laga aðstöðuna, markaðssetja ofl. Eða það finnst mér í dag allavega.

Mynd gærdagsins sem átti eftir að koma hér inn er hrærivélin sem við fengum frá ömmu í brúðkaupsgjöf. Æsandi rauð og ofsaleg. Ég hendi henni inn á eftir í svart-hvítu. Annars er ég að vinna fleiri verk. Sem fyrr hús og bæi í sveitinni. Hef verið að draga lappirnar í anatómíu og portrait. Það kemur seinna.

Fann loksins í dag þá pensla sem ég hef verið að leita að á Íslandi.

Sword striper Kazan squirrel hair til að mála díteila:



og svo "franskan" wash brush- oft nefndir mop brushes:

Þetta helvíti málar með sér sjálft sennilega. Í nýja verkefninu mínu ætla ég aðeins að nota þessa 2 pensla og velja aðeins 6 liti til að mála með.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap