Tros

Glaumbær
 Fór á Troskvöld á Skagaströnd í gærkvöldi. Vinnan bauð, ég þáði. Þessi samkoma er á vegum Lion´s klúbbsins og er fjáröflunarkvöldverður. Boðið er upp á ýmsa fiskrétti, létt skemmtiatriði og fjöldasöng. Það var nokkuð góð mæting en meðalaldurinn þarna inni sagði reyndar ýmislegt um byggðarþróun á landsbyggðinni. Þetta var eins og að vera á byggðarsafni með lifandi innsetningu.

Maturinn var snilld. Maður eiginlega kláraði sig samt af í forréttunum eins og stundum áður. Hvað er það með þessa forrétti, afhverju eru þeir alltaf bestir? Siginn fiskur, kúlaður steinbítur (siginn), hrogn, kútmagar, skötustappa, plokkfiskur. Aðalréttir voru m.a. lúða með sveppasósu, piparsteiktur hlýri, þorskhnakkar, saltfiskréttur á suðræna vísu og eitthvað meira. Allt unnið af sjálfboðaliðum undir handleiðslu yfirbrytans á Arnari HU-1.

Allir ready
Annars kom mamma með Halldóru og Helgu Guðrúnu á föstudaginn og gistu þær eina nótt. Vantaði bara Vagnbrekkubóndann og Hildi systur. Við höfðum það feykilega gott, átum pizzu og slöppuðum af. Ég mamma og Guðrún fórum svo saman út að hlaupa í gær (laugardag). Ég bætti svo við smá hjólaæfingu seinni partinn og hjólaði að Glaumbæ og heim aftur. Ætlaði í Varmahlið og til baka en ákvað að sjá hvernig þetta færi í mig og endaði í 34 km. Mér líður prýðilega í dag og lengi kannski aðeins næst. Maður á alveg að þola 50km ef maður stígur af hjólinu 1-2var á leiðinni.

Annars er ég farinn að finna fyrir því að vera ekki að fara eftir æfingaáætlun. Jafnvel þó maður sé að fara upp í 6 æfingar á viku, þá er þetta ekki að skila sér í bætingum þar sem maður gerir þetta bara af handahófi. Svona er þetta bara. Það er álagstími hjá mér í vinnunni og ég hef ekki náð úr mér hnjámeiðslunum. Fer til sjúkraþjálfara á föstudaginn og vonandi getur hann eitthvað hjálpað mér. Ef ég verð ekki kominn  á fullt í apríl verð ég væntanlega að breyta eitthvað hjá mér markmiðunum. En það er þá líka bara allt í lagi. Mörg ár til stefnu.

Kveðja, Bjarni


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap