Gjaldeyrishöft

Magnað hvað gengið er orðið skemmtilegt núna, þrátt fyrir höft.

USA $: 127
KAN $: 126
NOK kr 23!!!

Magnað! Ódýrasta herbergi á Grand Hótel í Oslo kostar ekki nema 58.000 krónur nóttin fyrir 2. Ég er að spá í að fara í mánaðarferð til Norge og borga 1,9 millur í gistingu. Stór pizza á Peppes kostar nú 6000 kall í Noregi. Ég býð Guðrúnu upp á pizzu 2 á dag og þá gerir þetta 370.000 kall í viðbót. Æi fáum okkur líka sitthvort kókglasið með og þá erum við að bæta við 112.000 kall. Ferðin (utanvið flug) verður því rétt um 2,5 millur.

Jæja ég er hættur þessu

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap