Íslenska leiðin

Við Íslendingar, þ.m.t. ég sjálfur, eigum það til að fara okkar eigin leiðir að hlutunum. Það er nú reyndar eiginlega frekar regla en undantekning. Þannig gæti íslenska leiðin til að byrja að hlaupa litið út:

1)Fá hugmynd

2)Fara á nýjasta námskeiðið um hlaup (betri en öll fyrri)

3)Kaupa föt, skó, úr og brúsabelti til að verðlauna sig fyrirfram að vera byrjaður að hlaupa

4)Kaupa prógram af þjálfara

5)Skrá inn æfingar mánaðarins fyrirfram

6)Missa svo úr 1 dag sem verður til þess að ekki tekur því að halda áfram. Sérstaklega ekki þar sem maður er hvort eð er að fara á ráðstefnu til Luxemourg eftir 2 vikur þar sem verður ókeypis matur og vín sem mun skemma prógrammið en frekar.

7) Hætta að hlaupa

Þetta ferli endurtekur sig svo fljótlega nema þá með annari íþrótt. Íþrótt (stundum kallað heilsukerfi af þjálfurum) sem nú er fullyrt, af mörgum helstu sjálfskipuðu heilsumógúlum landsins, að muni skjóta þér á ógnarhraða nær takmarki þínu, sem er að líta út eins og fólk utaná tímariti. Þú reyndar gætir þurft að byrja á því að fasta í nokkra daga og svo drekka engiferdjús í eina viku, en hvað gerir maður ekki fyrir útlitið.

Kveðja, Bjarni

Þetta er mitt innlegg í dag í að vera uppbyggilegur og jákvæður

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap