Ætlaði að vera rosa duglegur og bæta inn myndum í Ömmumyndir en þegar ég fór að taka út af vélinni voru bara 2 almennilegar nýjar myndir. Jæja, upp með myndavélina.
Annars er allt fínt að frétta af okkur og allir frískir. Fór samt með Daníel til læknis áðan þar sem hann hefur strítt við ógleði öðru hvoru. Hann sagði lækninum að hann fyndi stundum til ógleði eftir að hafa borðað kjúklingasúpu, lasagna og þegar hann vaknaði að morgni í efri koju. Jæja hann fékk einhver lyf og svo er búið að vísa honum til Ásgeirs Böðvars magalæknis. Mývetnski galdralæknirinn á eftir að græja þetta.
Fór í skólann í morgun í foreldraviðtöl með strákana og kennararnir voru bara ánægðir með þá og vitnisburður góður. Fórum í sund á eftir og svo í bakarí. Tók eina sundæfingu og ætla kannski að skokka fyrir svefninn.
Kveðja, Bjarni
Ummæli