Hjól

Jæja nú hef ég ekki farið út að hlaupa í næstum viku og er að fríka út. Held ég skreppi aðeins í kvöld og skokki smá hring í rólegheitum. Annars ganga sundæfingar bara vel og þetta prógram sem ég er að fara eftir lofar góðu. En ég á samt langt í land með að geta synt 1500 metra skrið í einum rikk- sem er sú vegalengd sem maður þarf að fara í ólympískri þríþraut. Alltaf gott að geta haft eitthvað til að stefna að. Maður er búinn að lufsast í laugina 4 sinnum í þessari viku og svo skellir maður sér aftur á morgun.


Ég er búinn að ákveða að þegar ég fæ mér hjól ætla ég að fá mér svokallað cyclocross hjól. Þetta eru í rauninni hjól sem sameina að einhverju leiti kosti hefðbundinna keppnishjóla/racers og fjallahjóla. Hægt er að setja breiðari dekk, hjóla í möl og drullu og setja nagladekk. Svo getur maður sett á þetta önnur handföng (til að fá meira framliggjandi stöðu) og dekk fyrir meiri hraða. Þannig er maður kominn með ágætis græju til að æfa fyrir styttri þríþrautir. Hjólið á myndinni er Cannondale SUPER X 2 SRAM RED.


Þar sem þessi hjól eru yfirleitt ekki til á lager sendi ég póst á tvær stærstu reiðhjólaverlsanir á landinu og spurðist aðeins fyrir og bað um tilboð. Það mætti halda að þeir hefðu séð á ritstílnum að ég væri bláfátækur og því ekki nennt að svara. Það eina sem ég veit er að þetta er dýrt. Í kvöld verður poppað og sest fyrir framan lottóið. Minn tími mun koma.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap