Hárgreiðslustofur

Skagafjörður hefur lengi verið þekktur á Íslandi sem mekka hárgreiðslustofanna. Maður þarf ekki annað en að ganga hér um miðbæinn á Króknum til að skilja afhverju. Hvar sem drepið er niður fæti sjást skilti á hárgreiðslustofum og inn um gluggana má líta broshýrar konur á miðjum aldri klippa hárið á bæjarbúum og sveitafólki.

Kaupfélagði hefur fram að þessu ekki séð ástæðu til þess að blanda sér í þessa baráttu en nú er að verða breyting á. Í gær opnaði hárgreiðslustofan Hárgift í Aðalgötunni við hátíðlega athöfn. Við það tilefni dróg Þórólfur fram skærin og klippti fyrsta viðskiptavininn með miklum myndarskap. Hinn heppni viðskiptavinur var Chon Nobu, skiptinemi og vinnumaður á Tunguhálsi í Lýtingsstaðahreppi.


Ummæli

Nafnlaus sagði…
ekki drepa mig úr hlátri Bjarni!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap