Listir og lambakjöt

Tveir frægir, vatnslitamyndir.
Dróg fram penslana og penna í gær og fór að mála. Hef ekki málað í meira en ár og í minningunni er ég miklu betri málari en raun bar vitni. Gamla góða óþolinmæðin gerði fljótt vart við sig og ég fór að pirra mig á því að hendurnar vildu ekki gera það sem heilinn sagði svo sjálfsagt. Gat ekki málað neitt annað en vinstri-vanga prófílmyndir, annað klúðraðist. Málaði Mozart, Nietzsche, Beethoven og George Bizet (sem samdi Carmen). Mig dreymir um að setja upp almennilega vinnuaðstöðu einhversstaðar og gefa mér betri tíma í þetta en það er um margt að hugsa.

Fór út að hlaupa í dag, enda langur sunnudagur. Var búinn að sjá fyrir mér að ég þyrfti að hvíla en var svo bara ágætur. Fann teygju sem virðist teygja vel á bandvefnum sem liggur úr mjöðm og niður í sinina sem er rétt fyrir neðan hné. Stirðleiki í þessu drasli getur víst orsakað einkenni sem bera það þjála nafn "Mjaðmar og sköflungstagsheilkenni /Iliotibial band syndrome", oft kallað hlauparahné. Ég var búinn að sjúkdómsgreina sjálfan mig með þetta og virðist hafa hitt naglann á höfuðið og nú er bara að halda áfram að teygja með þessari teygju.

Hlaup dagsins: 11km
Vikan
Hlaup: 29,4km
Sund: 2,2

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap