Æfingar
Nú eru að verða ca. 10 mánuðir síðan ég byrjaði að hlaupa en hef svo sem ekki lagt inn marga km upp á síðkastið. Hef verið eitthvað pínu áttavilltur og veit ekki alveg á hvað ég á að stefna. Maður fúnkerar ekki án markmiða í þessu. Golf, meiðsli og almennt vesen hafa aðeins sett strik í reikninginn síðan í lok júní og maður hefur svo sem ekki tíma til að gera allt. Hafði á tímabili áhyggjur af því að þessi bóla væri sprungin og ég sæti uppi með fullt af hlaupadóti sem ég nennti ekki að leika með.
Núna er ég búinn að fara 3var út að hlaupa síðustu 4 daga og er bara í nokkuð góðum gír. Ég held svei mér þá að maður setji fullan kraft í hlaupin aftur, þ.e ef hnéin hafa frið. Það er hálf ögugsnúið en ég sé veturna fyrir mér sem mitt aðal season í þessu. Ekkert að trufla, golfvöllurinn gulur og kylfurnar sofandi í geymslunni. Hinir hlaupararnir margir hverjir að hvíla skóna og sitja af sér myrkrið.
Ég ætla að reyna að fara að virkja bloggið aftur og nota það undir heilsutengdar pælingar. Það fælir varla marga frá, hér hafa fáir verið, allt dautt.
Kveðja, Bjarni

Ummæli
Halldór
kv Þórður