Norge


Jæja nú erum við fjölskyldan allt í einu á leiðinni til útlanda! Ferðin er reyndar löngu skipulögð, sniðin og greidd en svo kemur þetta allt í einu í bakið á manni. Vikunni eyddi ég á fullu í vinnunni að reyna að ganga frá öllum lausum endum svo fyrirtækið fari ekki á hliðina á meðan meistarinn er í burtu. Mestur tími hefur farið í það að grafa smettið á sér ofan í smásjá og skoða eiturþörunga. Ég veit að það hljómar ósennilega, en það er nú bara nokkuð áhugavert. Allt er gott í hófi eins og allir vita sem hafa notað eiturlyf og étið signa grásleppu.

Já ferðinni er heitið til Noregs. Er t.d að fara í Ás þar sem ég var í skólanum sælla minninga. Sigga systir Guðrúnar er þar í skóla. Það verður gaman að koma aftur og sjá hvort allt er jafn heimskulegt í Noregi og þegar ég var þar. Jæja. Síðan munum við fara til pabba í Sverige og hitta Þolla og Lísu. Þetta verður snilld.

Er að fara að keppa á 40 ára afmælismóti hjá Golfklúbbi Sauðárkróks í fyrramálið og verð á teig kl.10:00. Ég er búinn að þurrka af kylfunum, setja hreint handklæði á settið og ætla að taka til spariföt og bursta skónna á eftir. Ég hef trú á því að ég verði beittur í útliti. Síðan ætla ég að vera kylfuberi fyrir Daníel á sunnudaginn og aðstoða hann. Hann er að fara að keppa á Nýprent open og ætlar að keppa í byrjenda flokki. Ég kannski segi eitthvað frá því hvernig okkur gekk. Annars mun verða lítið um blogg á næstunni.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap