Sit heima ....

með lasinn gutta. Brynjar greyið er með all svakalega ælupest og engist hér um eins og í dauðateygjum sé. Hann er samt ótrúlega duglegur snáðinn og hefur hvorki grátið né kvartað. Ælir bara sínu galli og leggst svo á koddann og lúrir.

Það er alltaf verið að tala um skatta og það eigi að taka meira af þeim ríku. Mér finnst lógískt að taka bara meira af þeim sem minnst hafa. Þeir eru hvort sem er svo vanir að hafa það skítt að þeir taka ekki eftir því. En með okkur ríka fólkið, við þolum ekki svoleiðis viðbrigði.

Ein af ástæðunum fyrir því að ég skrifa stundum uppskriftir hérna inn er einfaldlega sú að mig langar sjálfan að muna það sem tekst vel. Við Guðrún tökum reglulega svona sætu-kartaflna-átskeið. Þá étum við þetta gjarnan 2-3x í viku og eldum þetta bara svona eftir því skapi sem við erum í, t.d með fersku timjan, rósmarín, hvítlauk og allskonar kryddum. Í gær útbjó ég samt fat af kartföflum sem heppnuðust óvenju vel. Skar sætar karftöflur í litla teninga og mýkti á pönnu með rauðlauksbátum í slatta af olíu. Skar niður ferska salvíu og kryddaði þetta með cummin kryddi og turmerik. Þetta passar alveg voðalega vel saman og hljómar alveg ógeðslega gay. Nú ætla ég út að bæta olíu á keðjusögina og skipta um dekk á kerrunni.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap