Scottish legend
Jæja hvað á að segja um þetta allt saman??? Eins og sést samt á myndinni þá er ég kominn í karakter. Það þýðir ekkert annað en að akta eins og lókall á þessum stað. Annars bara fær maður illa blandað meðal.
Ferðin hingað til Skotlands gekk nokkuð vel þrátt fyrir smá seinkun á flugi heima á klaka. Þegar ég kom á Heathrow þá reyndar var einhver prímadonna að vinna á deskinu, frekar eitthvað tussuleg (afsakið orðbragðið ég bara stenst ekki). Hún var ógeðslega dónaleg og naut þess að segja fólkinu við hliðina á að það væri glapræði að fara til Íslands. Þar væri allt svo fokdýrt, við myndum rukka þá um formúgu fyrir vörur og þjónustu, þrátt fyrir að við skulduðum þeim bunch of money. Langaði til að segja henni að hún væri ignorant fool en fattaði svo að þetta var kannski rétt hjá henni og ákvað að halda kjafti.
Flaug svo til Glasgow þar sem beið mín tryllitæki með stýrinu öfugu megin og leiðsagnartæki á frönsku. Oui oui monsieur, það eina sem vantaði, að gera þetta aðeins flóknara. Náði reyndar að lokum að breyta um tungumál og keyrði því næst logandi hræddur 4 hringi í kringum flugvöllinn. Það versta var að ég gerði það dauðóvart. Svona var ég í mikilli geðshræringu. Komst nú loks af stað og lenti reyndar ekki í neinum teljandi vandræðum utan við þegar stór vörubíll með tengivagn negldi niður, ökumaðurinn steytti hnefann út um gluggann og orgaði. Ég held því reyndar fram að hann hafi ekkert vitað hvað hann var að gera þarna og ábyggilega í órétti. Ég er reyndar búinn að komast að því hvað er það versta við að vera á bíl með stýristækjum á hægri hlið bifreiðar. Í venjulegum bílum er svona smá fótstig eða "pallur" vinstra megin við tengslin sem afskaplega gott er að spyrna í þegar maður losar vind. Þessu er ekki fyrir að fara í breskum bifreiðum og er það skömm. Maður var alveg eins asni þegar maður var að kreista úr sér fretana, jafnvel í blindbeygju á örmjóum vegi.
Í dag fór ég á The Scottish Association of Marine Science til að nema þörungafræði. Það helsta sem ég lærði var að þeir eru allt of margir og allt of líkir (þörungarnir). Þetta er töluvert meira mál en að þekkja kind frá belju þó það sé nú ekki öllum gefið. Maður þarf nú enga helvítis smásjá á blessað sauðféið þó maður notist nú við gleraugu dagsdaglega. Jæja maður lærir þetta kannski á endanum.
Síðan mætti nú alveg skrifa heila ritgerð um lobbýismann sem er í gangi hérna maður á svona rannsóknarstofnun. Shut up and call me Judy maður! Ég fræði ykku kannski um það seinna. Nú þarf ég að fara koma mér aftur upp á Gramarvin Guesthouse. Set kannski inn myndir úr bænum fljótlega.
Kveðja, Bjarni
Ummæli
Góða skemmtun áfram á vegunum!
Hverngi er það annars færðu ekki geggjaðan morgunmat á þessu gistiheimili sem þú ert á?
Kv. Sigga Júlla
Kveðja, Bjarni