Héðan er allt gott að frétta þó.......
veturinn hafi birtst síðbúinn og illa þokkaður. Það hefur snjóað svolítið yfir páskana en eins og svo oft áður er eins og veðurguðirnir geti ekki alveg ákveðið sig hvað í fjandanum þeir ætla að gera. Í kvöld fór að blota og kannski verður bílaplanið orðið autt aftur innan tíðar. Nenni ekki að moka, vona það besta. Það er nefnilega hlaupið vor í punginn á manni og grænar gresjur golfvallanna orðnar eins og þrálát útbrot á heilanum. Þó ég hafi unnið flest þau afrek sem hægt er að vinna í golfi, þar með talið unnið Kísiliðjubikarinn, þá bara fæ ég ekki nóg.
Í kvöld átum við restarnar af páskalambinu. Í Jesú nafni lugum við matinn ofan í drengina sem hafa löngum haldið því fram að þeir éti ekki lambakjöt. Lærið var sett í ofnpott með lauk, gulrótum, rósmaríni, hvítlauksstungið af ákafa, kryddað og stillt á lágan hita. Lærið reis svo upp í ljósabjörmum á þriðja degi og hét nú svínalæri. Þetta hafði jákvæð áhrif á börnin og var étið af bestu lyst. Áðan leiðréttum við svo þennan leiða misskilning. "ÓÓÓ... sögðum við svínalæri, við meintum lambalæri". Nú borða allir á heimilinu lambakjöt, svona erum við vont fólk.
Annars er ég að fara til Skotlands á sunnudaginn og þið munduð ekki trúa hvað ég er að fara að gera þar þannig ég segi bara ekki orð. En mun blogga um það síðar. Set samt inn eina mynd af bænum sem ég verð í sem heitir Oban.
Kveðja, Bjarni
Ummæli
Kv. Sigga mágkona í Norge
Kveðja, Bjarni