Glasgow

Jæja þá er maður kominn til Glasgow og ekkert útlit fyrir að maður sé að fara héðan á næstunni. Nýjustu frétttir herma að það verði í fyrsta lagi flogið á mánudaginn. Jæja það ver víst lítið sem maður getur gert annað en að rölta niður í bæ og skoða sig um. Sennilega betra en að vera fastur í vinnuferð á Raufarhöfn eða eitthvað. Meira að skoða hér.

Var á flugvellinum áðan og lenti í viðtali á BBC Scotland! Manni fannst maður nú eitthvað fipast og vera asnalegur en ég hlýt samt að hafa verið eitthvað smá svalur líka. Hugsaði reyndar eftir á að þetta hafi nú kannski komið skringilega út þar sem ég sagðist ekki hafa neinar áhyggjur af Kötlu eða þessu eldgosi, að ég byggi á norðurlandi. Þeim fannst þetta eitthvað skrítið.

Jæja það þýðir ekkert að sitja hérna og væla, best að drífa sig í bæinn með 2 fulla haldapoka af þvotti og finna þvottahús.

Læt kannski í mér heyra fljótlega. Kær ar kveðjur úr ríki skakkra tanna og kartöfluflaga.

Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap