Slow Cook
Frændfólk mitt gaf mér um daginn forláta pott sem kallast Slow Cook. Hugmyndin á bak við slíkt apparat er að maturinn fái hæga og langa "eldun", hráefnið verði meirara og útkoman bragðmeiri. Eldun tekur að jafnaði 6-12 klst og það er víst hægt að elda í þessu allan fjandann, súpur, kássur, kjúkling og Kaninn er mikið fyrir svo kallað pot-roasts. Það var víst The Naxon Utilities Corporation of Chicago sem framleiddi svona apparat fyrst en ég held að grunnhugmyndin af svona eldamennsku sé væntanlega mörg þúsund ára gömul.
Ég fór hægt af stað í þessu en er að taka mig á og læra inn á þetta. Ég hef eldað hafragraut sem verður reyndar hrikalega linur (eldaði hann yfir nótt), grjónagraut sem þarf að fylgjast vel með (og varð reyndar voðalega linur), baunasúpu sem heppnaðist ágætlega og svo í kvöld, kjötsúpu sem var alger snilld.
Á veraldarvefnum úir og grúir af uppskriftum fyrir svona potta. Ég hef nú ekki prófað neina af þeim ennþá en ef maður notar venjulegar uppskriftir þarf maður kannski að breyta þeim aðeins þar sem vatn gufar ekki upp úr svona potti og trala lala la
Bein- og fituhreinsað súpukjöt skorið í bita(4 vænir bitar)
1/2 lítill hvítkálshaus
1 laukur skorinn í tvennt
1 stór gulrót í bitum
15 cm púrrulaukur
1 desilíter hrísgrjón
5 svört piparkorn
4 teskeiðar salt
Þessu var bara hent í pottinn og hann stilltur á low í hádeginu (mætti gera um morguninn). Svo var rjúkandi súpa tilbúin þegar við komum úr ræktinni um kvöldmatarleitið. Næst á dagskrá er 8-10 klst gæsalæraeldamennska. Ég er alveg að dýrka það að vita af matnum að eldast á meðan ég er í vinnunni. Reyndar erfiðara að einbeita sér ef það er kjötsúpa á fóninum en það hlýtur að venjast.
Kveðja, Bjarni
Ummæli