Áramót

Áramót eru tími óraunhæfra markmiða og bjartsýni á betra útlit. Einhverra hluta vegna tengjast þessi markmið alltaf þyngd. Eðlisfræðin blívar. Það fyrsta sem maður gerir eftir áramót er að stíga á viktina og þá er gott að hafa í huga nokkur atriði:

1) Viktið ykkur á morgnana
2) Hafið fyrst þvaglát
3) Kreistið einnig út saur ef hægt er
4) Prumpið
5) Reynið að vikta ykkur liggjandi til samanburðar
6) Takið 10 mælingar og veljið skástu úr
7) Gerið morgunæfingar á viktinni
8) Viktið ykkur í öllum herbergjum
9) Skráið loftþrýsting
10) Og síðast en ekki síst, verið nakin

Varðandi lið 2,3 og 4, þá getur verið áhugavert að gera þetta allt á meðan þið standið á viktinni. Hafið þá blað og penna í hönd og skráið ört niður breytingar.

Gangi ykkur vel í baráttunni við aukakílóin.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap