Tveir ólíkir draumar
Í nótt höfðum við skötuhjú ógurlegar draumfarir og beið maður spenntur eftir því hvað þetta hefði nú í för með sér. Dagur er nú að kvöldi kominn og ekkert hefur svo sem markvert gerst en svona voru draumfarirnar:
Guðrún: Hana dreymdi að við vorum að labba inn að Reykjum í Hjaltadal og vorum að ýta á undan okkur þungu fargi, ekki ólíku snjóþjotu. Á Reykjum átum við vöfflur í miklum halla með Dorrit Mússajeff og Ólafi Ragnari Grímssyni. Það kom Guðrúnu mjög á óvart hversu auðvelt við hin áttum með að snæða vöfflur í svona miklum halla, hátt uppi í hlíð. Guðrún er nefnilega lofthrædd.
Bjarni: Ég var að keyra upp Þverárfjallið á lyftara. Þegar ég er kominn upp í miðja brekku mæti ég Halla á fiskmarkaðnum og lætur hann illa af færðinni upp á fjalli. Hann er klæddur í búning sem er ekki ólíkur flotgalla en á að þola mikinn hita og er sjálfur að aka á lyftara. Halli tjáir mér að ekki sé óhætt að keyra þarna uppfrá á lyftara þar sem einhverir hverir séu farnir að breiða úr sér inn á veginn. Hann hringir á vörubíl sem ætlar að setja lyftarana á pallinn og skutla okkur yfir þetta háhitasvæði sem að sjálfsögðu finnst ekki þarna dags daglega.
Góða nótt, Bjarni

Ummæli
Draumur Guðrúna: Þú (Bjarni) munt íhuga forsetaframboð og lætur verða af því fyrst Guðrún náði að sigrast á lofthræðslunni og snæða vöfflu í svona miklum halla.
Draumur Bjarna: Þegar maður fer í slíka baráttu sem forsetaframboð er er mikilvægt að vera vel tengdur við grunnatvinnuveg þjóðarinnar (Halli á fiskmarkaðnum)til að hjálpa manni að takast á við þær hindranir sem á vegi manns verða.
Gangi þé vel Bjarni.
Kær kveðja
Sigga Júlla