Aldrei of varlega farið


Vinnan sem ég inni af hendi dags daglega hjá BioPol er ekki með öllu hættulaus. Sjóferðir, sýnatökur og aðrir rannsóknarleiðangrar, svo ekki sé minnst á nálægðina við lifandi ófreskjur eins og seli, grásleppur, eitraða þörunga og óútreiknanlega rauðmaga er eitthvað sem enginn fer út í ótilneyddur. Það er daglegt brauð hjá okkur að leggja líf okkar að veði til að safna gögnum og stunda rannsóknir í þágu íslensku þjóðarinnar. Það eina sem við biðjum um er að koma ávallt að landi og fá að eyða jólunum í faðmi fjölskyldunnar. Myndin er tekin af mér við skyldustörf nú í desember.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Halldór sagði…
Afsteypa, Skútustaðakirkja, andlit þetta hljómar eiginlega allt eins og gleðileg jól hjá mér...
Halldór sagði…
og þú lítur eiginlega svoltið út eins og skútustaðakirkja eftir að gvendur hofsi hefur komist með vélalakkið í hana...
Nafnlaus sagði…
Skil ekkert í að það skuli ekki vera búið að stofna stuðningshóp fyrir þig og fólk í líkum stöðum og þú þarna á þessari fésbók!! Endalaust óréttlæti!
Kv. Sigga Júlla sem stundar hættulegar feltferðir í skógum Noregs.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap