Helgin á enda og alvara lífsins tekur við
Þetta hefur verið löng og ströng helgi. Í gær, laugardaginn 22. nóv, þurfti ég að ganga til rjúpna og reyna að afla matar fyrir heimilið. Það gekk svo sem stóráfallalaust fyrir sig en var alveg hrikalega erfitt en það er ekki laust við að húsbóndahlutverkið gangi stundum nærri manni. Ekki nóg með að ég hafi þurft að ganga allan liðlangan daginn, heldur þurfti ég líka að smyrja nesti og taka mig til sjálfur. Þegar heim var komið fékk ég svo enga aðstoð við að þrífa byssuna, hengja upp rjúpurnar og ganga frá. Þegar veiðifötin voru búin að liggja blaut á gólfinu ásamt rjúpnavestinu í 3 klukkutíma þá sá ég mig tilneyddan til að ganga í málið sjálfur, setti upp svip og haltraði fram í forstofu og hengdi upp flíkurnar. Þetta gerði ég sárþjáður í mjöðminni og með nuddsár í rassinum. Reyndar lét Guðrún renna í bað fyrir mig sem var eins gott því annars væri ég ekki að skrifa þetta núna svo örmagna var ég.
Ekki hefur dagurinn í dag verið betri. Hér hefur staðið yfir þvílík tiltekt og ........ verð að hætta, ég heyri að Guðrún er að koma! Bless, heyrumst seinna.
Kveðja, Bjarni
Ekki hefur dagurinn í dag verið betri. Hér hefur staðið yfir þvílík tiltekt og ........ verð að hætta, ég heyri að Guðrún er að koma! Bless, heyrumst seinna.
Kveðja, Bjarni
Ummæli