Föstudagssteikin



Á þessari mynd má sjá mjög girnilega steik, vantar bara brúnu sósuna, rauðkálið, sultuna og kartöflur. Þ.e, ef fólk hefur áhuga á því að éta lunga úr reykingarmanni. Varð bara svona aðeins að stappa í mig stálinu, þið verðið að afsaka.....

Annars sit ég bara hérna í vinnunni og rígheld í stólinn enda spáð 30 m/s seinnipartinn. Það er bara vonandi að maður komist heim á Krók. Ekkert plan fyrir helgina, Guðrún ætlar að vinna eitthvað í ritgerð og ég ætla að berast með straumnum. Aldrei að vita nema að maður kíki upp á golfvöll ef það tekur upp í rokinu. Jæja best að fara að gera eitthvað.....

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap