Eitthvað helvítis bull að venju

Ég hef haft um margt að hugsa upp á síðkastið og hef lengi ætlað að blogga um hluti sem hafa legið á mér eins og Icesave reikningar. En viti menn, nú man ég ekkert hvað það átti að vera og því verð ég bara að reyna að grípa eitthvað af handahófi sem fýkur mér hjá. Ég sit hérna við eldhúsborðið, nýbúinn að ata saltfisk framan í mig, smyrja rúgbrauð þykku sméri og troða í þarm, sötra rótsterkt kaffið í eftirmat. Þetta hlýtur að virkja skriftarstöðvarnar.

Ég vil byrja á því að hrósa fólkinu á Selfossi sem hélt stuðningsfundinn fyrir prestinn sem huggaði fermingarstelpurnar og kyssti þær. Að láta Árna Johnsen ávarpa samkunduna var sterkur leikur og til þess fallinn að vekja traust almennings á klerkinum, kirkjunni og enn fremur að auka álit manna á Selfossi sem var þó mikið fyrir. Þetta svínvirkaði allavega á mig..... halelúja!

Ég fór á ráðstefnu í Reykjavík um daginn og var hún haldin á Hótel Lind á Rauðarárstíg. Ég mæli með þessu hóteli í hjarta bæjarins. Mér fannst það vera ákveðinn gæðastimpill að mæta miðaldra konu í náttslopp með rúllur í hárinu í móttökunni sem var að fara út að reykja.

Þar sem ég er orðinn svo gamall að ég man ekki hvað ég ætlaði að skrifa um, skrifa ég bara um það hvað ég er orðinn gamall. Og lúinn. Eftir að ég drap í síðasta vindlingnum hefur ellin helst yfir mig af þvílíkum krafti að ef ég ætti eitthvað annað en skuldir, þá myndi ég fara að skrifa erfðarskrá. Að hætta að reykja er einhver mesta heilsuspilling og bull sem nokkur getur tekið uppá. Djöfullinn hafiða!! Þetta byrjar á því að vömbin á manni fer að teygja sig fram, sentimeter fyrir sentimeter skríður þetta ferlíki úr fylgsnum og jafnvægisskynið fer að raskast (bæði vegna offitu og sjóntruflana). Næsta skref er að leggja 24.000 kr Diesel gallabuxurnar á hilluna og draga fram gömlu „alltofstóru“ joggíngbuxurnar sem voru rauðar en eru orðnar bleikar. Að lokum stendur maður varla undir sjálfum sér og sér ekki einu sinni eigin kynfæri í sturtunni. Það er samt furðu léttvægt miðað við andlega þáttinn. Hér gengur maður um gólf organdi og sparkar og lemur í átt að börnum og öðrum gæludýrum sem ganga hjá. Hárþynning eykst og nýrun hafa náð svo mikilli starfsorku að ég stend kófsveittur við hlandskálina frá morgni til kvölds. Verstar eru samt klósettferðirnar á næturnar. Ég hef þvaglát (höfum þetta pent) um kl. 23:00 þegar ég leggst til hvílu. Næst vakna ég kl. 02:00 og þarf að fara aftur á banijóið og nýti þá gjarnan ferðina og fæ mér oft mjólkurkex í leiðinni sem hefur slæmar afleiðingar á vömbina. Síðan vakna ég iðulega kl. 05:00 til að pissa en næ svo að sofa í einum sprett til kl. 06:45 þegar klukkan hringir og ég vakna í hlandspreng. Jæja þetta fer að verða nóg af tuði, ég er allavega búinn að spara mér 12.000 kr á hálfum mánuði og ætti því að geta keypt mér fitusog fyrir næsta sumar. Svo ég líti vel út í baðfötum... oooo mæææ.


Kveðja, Bjarni

Ummæli

Halldór sagði…
Þú verður að fara að draga fram grænu pumasjallasauðburðarbuxurnar
Bjarni sagði…
Já takk fyrir það og gaman að sjá að þú ert á lífi. Halldór, ég er annsi logandi hræddur um að græna Sjalladjásnið sé farið veg allra veraldar. Líka inniskórnir sem ég var í þarna um árið. Fyrir þá sem ekki eru búnir að kveikja á perunni þá fór ég í sjallann í grænum fjárhúsajogginbuxum og inniskóm.

Kveðja, Bjarni

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap