Har det bra bra bra

Já góðann daginn kæru vinir.

Nú er ég kominn til Svíþjóðar og lifi hér nautnalífi Ala franskir aðalsmenn. Um leið og maður kom í hús var maður laminn í gólfið og færibandi troðið upp í kjaftinn á manni, sett á On og síðan runnu ofan í mann dádýralæri og páffuglabringur. Sósan flæddi og sultan glansaði. Ekki hægt að kvarta neitt yfir neinu. Hildur systir og Kalle kærastinn hennar voru hér með okkur í gærkvöldi og var þetta í fyrsta skipti sem ég hitti drenginn. Fínn gaur!

Ég og gamli erum núna að leggja af stað upp til Smálanda og sit ég hér í makindum á meðan pabbi tekur til í bílinn og græjar allt. Hann var að reyna að virkja mig eitthvað en ég sagði bara "er ég kominn til að vinna eða hafa það gott?".

Jæja ég hendi vonandi inn einhverjum myndum þegar við komum til baka úr þessu inbreed- samfélagi þar sem við erum að fara að veiða.

Góðar stundir, Bjarni

Ummæli

Thea Morken sagði…
Håper du har det bra i Sverige :-)
God sommer forresten!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap