Allt of langt blogg
Ég veit ekki afhverju í fjandanum ég er kominn á fætur fyrir klukkan átta, og það í sumarfríi. Gæti kannski tengst elli og hlandspreng? En jæja, ég nota þá bara tækifærið og læt langþráða og blauta bloggdrauma rætast.
Áður en ég hef yfirreið mína um ýmis málefni, þá langar mig að hæla eftirfarandi hlutum: Gotti, smurostur frá Osta og smjörsölunni. Kaffi, hressandi drykkur. Golfvellinum á Sauðárkróki sem hefur fóstrað mig eins og eigið afkvæmi síðustu daga. Morgunþáttur með Kristjáni Kristjánssyni (KK) á Rás eitt milli 8 og 9. Þar hljóma ljúfir tónar. Old spice svitalyktaeyðir sem fæst í Hagkaup.
Hlutir sem ég fordæmi: Fréttir, það er ekki nokkur leið að hlusta á þetta helvíti lengur. Tek þann pól í hæðina að vera ignorant fool og gefa skít í það sem er í gangi hér heima og erlendis. Einnig stend ég í heilögu stríði við öfl sem ég þori ekki að nefna á nafn í fjölmiðlum. Ég fordæmi þessi öfl en hef ekki gefist upp og mun ekki gera það. Vísbending: tengist viðgerðum á bifreiðum, Framsókn og Al Capone.
Annars er allt gott að frétta af okkur skötuhjúum og höfum við verið ein í kotinu í nokkurn tíma, þ.e ef ég tel ekki kisu með. Enda hefur rómantíkin verið við völd, exotískir ávextir, rósablöð, kaldir drykkir og heit ilmolíuböð daglegur viðburður.
Já við höfum reynt að hafa það gott enda ég að bregða mér af bæ á morgun. Stefnan er tekin á Svíþjóð þar sem ég mun dvelja við skotveiðar frá 14.- 20. ágúst. Þegar ég kem til baka legg ég mig í nokkra klukkutíma og fer svo í 3 daga golfferð til Norður Karólínu þar sem ég mun spila golf og horfa á PGA mót. Púff maður, djöfullsins erill á manni bara. En jæja, það þarf víst einhver að gera þetta. Ég hefði boðið Guðrúnu með en það þarf jú einhver að sinna uppeldinu á kettinum.
Talandi um kötinn, sem nú hefur fengið nafnið Tiger Woods, þá dafnar hún ljómandi vel og bæði fitnar og stækkar. Áhugamálin eru ekki flókin en ólíkt flestum köttum sem ég hef kynnst þá er hún bókhneigð. Við erum með körfu á gólfinu sem er full af kiljum. Þar dvelur hún löngum stundum og er eitthvað að vasast. Hún hefur ekki séða neina ástæðu til að skemma bækurnar að einni undanskilinni: Höll minninganna eftir Ólaf Jóhann er orðin vel nöguð og snjáð. Ekki svo vitlaust dýr!
Jæja þetta er orðið allt of langt en ég blogga kannski eitthvað hjá pabba þegar við komum af veiðunum og svo hendir maður inn myndum.
Kveðja, Bjarni

Ummæli