Af ljónum
Það er tvö ljón sem hafa spilað hvað stærsta rullu hér á heimilinu 2 síðustu daga. Hún Guðrún mín, sem er ljón, átti afmæli í gær og var því fagnað með ofáti á margkyns góðgæti og góðir gestir komu í hús. Ég byrjaði daginn á því að færa henni bakkelsi og kaffi í rúmið en hef ekki ennþá fundið almennilega afmælisgjöf handa henni. Var búinn að finna prímagott topplyklasett á afslætti en eitthvað fífl hafði keypt það á undan mér, svo það verður bara að bíða enn um sinn. Ég er hvort sem er að fara til Svíþjóðar fljótlega og þar er hægt að kaupa miklu ódýrari verkfæri og eldhúsáhöld.
Svo er komið annað ljón á heimilið. Dýrið er nafnlaust en um sinn, pínulítil læða sem skottast hér um allt. Fyrsta daginn þorði hún nú lítið að hreyfa sig um íbúðina en í gær tók hún miklum framförum og hafa þær vakið mismikla kátínu. Hún er t.d farin að klifra upp í hjónarúm, glugga, ráðast á gardínur og rafmagnssnúrur. Í nótt endaði með að ég þurfti að loka hana frammi eftir að hún var farin að nudda sér upp við smettið á mér og klóra mér á bakinu. Maður setur kannski eina mynd af henni hérna inn við tækifæri.
Kveðja, Bjarni

Ummæli