Bjarni jákvæður þrátt fyrir slakan vinnudag.

Þrátt fyrir að hafa lent í miklum barningi í vinnunni í gær, þá neitar Bjarni Jónasson því staðfastlega að hann sé niðurdreginn eftir vinnudaginn sem tók 8 klukkustundir. Bjarni fór um víðan völl í gær og hefði hæglega getað klúðrað meiru ef ekki hefði verið fyrir góða frammistöðu við ljósritunarvélina.

Hann viðurkennir að hann hafi verið langt frá sínu besta en var samt nokkuð bjartsýnn á að koma sér í baráttuna um nafnbótina “starfsmaður mánaðarins”.

„Það er augljóst að ég gerði nokkur mistök í vinnunni í dag. Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég sennilega gert eitthvað af viti en ég gerði mistök sem kostuðu sitt. Ég get vonandi unnið betur næst þegar ég mæti og afkastað einhverju meira en að sulla kaffi á skýrslur og trufla yfirmanninn,“ sagði Bjarni sem segir þolinmæði mikilvæga.

„Það er mikilvægt að halda ró sinni í vinnunni en auðvitað hefði verið auðvelt að skila betra verki í gær. Það voru aðrir sem skiluðu góðu verki og ég ætla að vinna í ákveðnum hlutum áður en ég mæti næst.“

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap