Ég og Tiger


Afhverju er Tiger Woods betri en ég í golfi? Hakið við rétt svar:

1)Hann byrjaði 2 ára að spila golf
2)Hann er fæddur íþróttamaður (genetískt)
3)Hann æfði (æfir) endalaust mikið

Það er að sjálfsögðu hægt að haka við þetta allt saman. Það geta ekki allir orðið góðir í golfi, en ef maður uppfyllir eitthvað af þessum 3 skilyrðum, þá getur maður náð ágætis árangri, þ.e ef maður á ekki við líkamlega fötlun að stríða. Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þetta er sú, að ég er að reyna að hætta að rífa mig niður á golfvellinum og líta jákvætt á hlutina. Þá er ég allavega búinn að losa mig við andlega fötlun sem er ábyggilega ekki svo góð í golfi heldur. En hversu mikið þarf ég að vinna í þessu áhugamáli til þess að verða svona þokkalegur?

Ég var að grúska á netinu og fann plan yfir venjubundinn vinnudag hjá Tiger Woods:

06:00 - Lyftingar og hlaup í 1,5 klst.
08:00 - Morgunmatur
09:00 - Slá æfingabolta á æfingasvæðinu
11:00 - Púttæfingar
11:30 - Spila níu holur
12:30 - Hádegismatur
13:00 - Fara aftur á æfingasvæðið
15:00 - Æfa stutta spilið
16:00 - Spila aðrar 9 holur
17:00 - Fara á æfingasvæðið
17:30 - Púttæfing
18:00 - Vinnudegi lokið

Eftir að hafa lesið þetta, þá er ég að hugsa um að viðurkenna vanmátt minn og verða aðeins minna pirraður á vellinum. Ég verð að fara að sætta mig við það, að það eina sem ég á sameiginlegt með Tiger eru upphandleggirnir.

Hátíðarkveðjur, Bjarni

Ps. Myndavélin mín er batteríislaus og því gat ég ekki tekið mynd af upphandleggjunum á mér.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap