Vinnan

Jæja mig langaði bara til að henda hérna inn myndum úr vinnunni. Við hjá BioPol höfum ekki ennþá komist á grásleppu þetta árið en við komumst þó á sjóinn í gær til að taka sýni fyrir kræklingaverkefni og þörungarannsóknir.

Mynd 1. Halldór (yfirmaður) dregur dýrasvifsháfinn inn með fumlausum handahreyfingum hins auðmjúka vísindamanns. Hann gerir þetta undir styrkri stjórn og með leiðsögn meistarans (fyrir þá sem ekki fatta þá er ég að tala um sjálfan mig).


Mynd 2. Halldór yfirmaður.


Mynd 3. Stímað í land. Ef myndin er stækkuð sést greinilega að ég hef sett upp sparisvipinn. Þennan svip setti ég síðast upp eftir góðan golfhring með Stebba á Kävlinge golfvellinum í Svíþjóð.



Mynd 4. Þarna erum við komin í land og ég farinn að sía sjó í gegnum glerfiltera sem komið er fyrir í vacuum- síunarbúnaði.

Jæja þetta er ágætt lömbin mín og megið þið eiga ljúfa páska.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap