Lifi
Vildi bara láta vita að ég er á lífi. Allt gott, farinn að vinna á fullu þótt mér finnist vort lýðveldi ekki verðskulda mína starfskrafta. Vinnan er að koma ágætlega út þó ég hafi þurft að hlusta mikið á Bylgjuna. Dags daglega mæli ég beitukóng eftir bestu getu þ.m.t lengd getnaðarlima. Vissuð þið, að karlkyns beitukóngur, nær kynþroska þegar getnaðarlimur er orðinn helmingur af heildarlengd skepnunar? Hægt að setja þetta upp í formúluna: limur = heildarlengd x 0,5 = partý. Er þetta nokkuð svona hjá okkur líka? Aldrei spáð í það en mig vantar þá nokkra cm upp á kynþroskann. Þegar kynþroska er náð og limur hefur náð þessari heppilegu lengd, sjænar karlinn sig til, finnur sér heppilega kerlingu í undirdjúpunum og rennir tólinu undir skelina hjá henni. Þetta fer fram um miðjan vetur, rétt eins og hjá okkur mannfólkinu. Ef þið hafið áhuga á að vita meira um kynlíf beitukónga þá er ég að skrifa grein sem fjallar um áhrif kynlífsfíknar á félagsmótun beitukónga.
Eins og þið sjáið á meðfylgjandi mynd, þá eru þetta gríðarlega fallegar skepnur og tignarlegar á sundi. Ég vil ekki segja eggjandi, en allt að því. Húrra!
Kveðja, Bjarni
Ps. Ekki taka mark á formúlunni ég hef aldrei kunnað að reikna.
Ummæli