Pólitískur pistill
Árið 1547 var gefin út bók um þjóðir í Norðurálfu, sem í er lýsing á Íslandi og Íslendingum, og var höfundur hennar maður að nafni Andrew Boorde. Í sjötta kafla bókarinnar segir af Noregi og Íslandi, og eru þar ofan við ljóðlínur, sem lagðar eru íbúum þessara landa í munn.
„Heimkur eins og dýr“.
Í ljóðum þeim, sem Íslendingum eru lögð í munn, segir á þessa leið:
„Ég fæddist á Íslandi eins heimskur og dýr, að eta kertisbúta er mér hátíð, ég er sólginn í tólg og hráa skreið, það þykir indæll matur í landi mínu. Hráan fisk og hrátt kjöt et ég, þegar ég þarf, sá matur þykir mér góður. Lítið hirði ég um messur og morgunsöngva, og um góð klæði skeyti ég aldrei, gott þykir mér að klæðast dýraskinnum, hvort heldur eru úflaskinn eða bjarnarfeldir.“
Og áfram heldur höfundur að fjalla um Íslendinga:
„Hús hafa Íslendingar engin, heldur liggja þeir í hellum eins og svín. Þeir eru dýrslegir, fávísir og ósiðaðir, selja hunda sína og gefa börn sín. Þrátt fyrir allt eru Íslendingar sagðir góðir fiskimenn. Þeir láta mikið af fiski sínum í hendur Englendingum og fá í staðinn mjöl, bönd, skó og aðra smámuni, en peningar eru engir. Nokkrir prestar eru í landinu, og þeir eru blásnauðir, en halda samt frillur“.
Heimild: Jón Helgason,1980. Öldin sextánda 1501 – 1550 Iðunn, Reykjavík
(Bara svo ég lendi ekki á milli Hólmsteins og sleggju)
Og hvað hefur svo gerst á þeim rúmu 450 árum sem Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur hafa setið við völd? Nákvæmlega ekki neitt. Þessi lýsing gæti verið skrifuð fyrir daginn í dag, hún gæti verið skrifuð um mig og þig Eyjólfur minn (ha ha ha og þú sjálfur). Ég segi nú ekki meira.
Kveðja, Bjarni

Ummæli