Bestu smásjármyndir 2008




Ég ætla að leyfa mér að vera vísindalegur í dag. Búið er að velja bestu smásjármyndir fyrir síðasta ár. Er hægt að nördast meira? Ég rakst á þessar myndir og á top 10 var að finna tvö fyrirbæri sem tengjast mér sterkum böndum. Á efri myndinni má sjá Trichodina sníkjudýr sem algengt er í fiskeldi og reyndar ferskvatni um allan heim. Takið eftir einstaklega fallegri og symetískri kísilstoðgrindinni. Alveg brilliant sníkjudýr sem veldur helvítis ónotum og veseni.....

Hin myndin er af kísilþörungi sem búið er að varpa á bláu ljósi (black light). Mikið er ég þakklátur fyrir að hafa fengið að dæla þessum agnarsmáu gimsteinum drottins á land í Helgavoginum.

Amen, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Held að við ættum að gauka því að stebba að það væri hægt að varpa black light á mývatn og gera það grænt og rautt fyrir jólin. Hann fær ábyggilega niðurgang þangað til hann er búinn að prófa það.
Þ.e.a.s. ef þið eruð ekki búnir að dæla öllum kíslinum úr vatninu svíðingarnir ykkar....
Bjarni sagði…
Já við verðum að stinga þessari hugmynd að honum. Svo getum við kveikt í Hverfjalli á eftir.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap