......og dagana lofa

Í nótt dreymdi mig að ég var að leggja úr höfn með Samherjadalli og til veiða á úthafinu. Eftir nokkurra stunda stím tók áhöfnin eftir því að við vorum að koma til hafnar á Akureyri. Þorsteinn Már stóð stoltur í brúnni og silgdi á miklum hraða eins og enginn væri morgundagurinn. Áhöfnin vissi að nú var eitthvað í pípunum því upphaflega stóð ekkert til að fara að koma við á heimavelli. Þegar dallurinn hafði verið bundinn við kaja röltum við piltar allir með Máa (cool að segja það, eins og ég þekki hann eitthvað) upp að einhverri Samherjabyggingu, sem í draumnum stóð við bryggjuna. Þegar við komum þangað mættum við fíntpússuðu skrifstofuliði sem var að koma af löngum fundi og var algerlega niðurbrotið. Davíð Oddsson hafði upp á sitt einsdæmi náð að taka allan kvótann af Samherja og því ekkert útliti fyrir að ég færi minn fyrsta túr á togara.

Ég held að ég ætti ekki að horfa meira á fréttir á næstunni..........

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Heyrði í Gissuri Sigurðssyni í útvarpinu í morgun þar sem hann var að tala um ástand Íslands í dag. Fannst það mjög fínt innlegg hjá honum.
Þetta sagði hann í stuttu máli.

Íslenska ríkið er nánast skuldlaust, sem er mjög gott miðað við ungt lýðveldi og bara svona almennt.

Við erum með "endurnýjanlegar" orkulindir sem duga okkur lengi og framleiða raforku um ókomin ár í stórum stíl okkur að kostnaðarlitlu.

Orkan er að 80% flutt utanlands í formi áls sem er og verður áfram gríðarlega vinsælt efni merkilegt nokk.

Þrátt fyrir háar skuldir eigum við líka þónokkuð af eignum á móti þessum skuldum.

Mín viðbót.

Það er nú bara kannski kominn tími til að við íslendingar almennt hættum að lifa eins og greifar og greifynjur. Hættum að skipta út 39 tommu flatskjá fyrir nýjum 42 tommu flatskjá bara afþvíbara.
Ekki kaupa Jeppa andskotinn hafi það nema þú þurfir á því að halda að eiga bensínsvolgrara...

Tökum slátur, notum innmat, drekkum ókeypis vatn úr krananum í stað þess að borga jafnvirði lítra af bensíni fyrir hálfan lítra af sódavatni með eða án sítrónubragðs.
Bjúgu eru fínn og ódýr matur, notum tækifærið og etum íslenska kjötvöru, grænmeti á meðan hægt er og fisk að sjálfsögðu.

Læt þetta næga.
Þurfti bara aðeins að tjá mig.
Nafnlaus sagði…
Mín viðbót, spilum svo rándýran fótbolta í Húsi Sportsins og höfum gaman af. Engar áhyggjur!
Bjarni sagði…
Já þetta eru allt frábærar hugmyndir. Ég elska bjúgu og fótbolta! Áfram Ísland!
Nafnlaus sagði…
Eitthvað er nú breytt hljóðið í Stefáni Pétri umhverfissinna og álrisa.....
Sólveig sagði…
Hér í þvottahúsinu mínu hangir grænn stakkur sem ég er alveg viss um að þú ert eigandi að.
Reyndar er hér líka svona einhvernvegin brúngrænn stakkur sem ég veit eingin deili á........Dóri minn átt þú hann nokkuð eða kanski Þórður?
Vona svo að þú sert ekki mjög beygður af kreppunni Bjarni minn en þá er nú allavega gott að eiga stakkinn græna vísann til að sveipa um þig :)
Solla sem er á leið á heilsuhælið í Hveragerði.
Bjarni sagði…
Já takk fyrir það. Átta mig nú reyndar ekki á því hvaða stakkur þetta er? Kem kannski og kíki á hann þegar ég kem suður næst.
Bjarni sagði…
Já og varðandi efnahagsmálin, nei það fer ekki vitund í taugarnar á mér.....

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap