ÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚHA hA



Hvernig gat ég verið svona heimskur að spá því að allt færi til helvítis? Þegar ég var nýbúinn að fylla skápana af niðursuðuvörum, brytja niður húsgögnin í eldivið og farinn að spá í hvaða nágranni sé með girnilegasta síðuspikið, þá koma fréttirnar. Við vorum að eignast banka!!! Jibbí......

Til hamingju með „nýja“ bankann elskurnar!! Ekkert smá góð kaup að selja hann á 1 milljarð og kaupa hann svo á 84 strax aftur. Ég ætla út í búð á eftir og kaupa mér rjóma, tannþráð og feitt súpuket. Kreppu er frestað, takið tappa úr flöskum og hellið ykkur drukkin sem aldrei fyrr og dansið við þetta lag sem fjósapíkur fríðar hafa bent mér á..

Húrra, ÉG

Ummæli

marta sagði…
Þetta er alveg fáránlega hresst fólk. Konan í gullkjólnum setur örugglega einhvers konar met í haushristingum.
Mér finnst hins vegar rjóminn ekkert passa neitt sérstaklega vel með súpukjötinu og tannþræðinum. Þó má alltaf þeyta hann og borða hann sem eftirrétt. Verði þér að góðu :)
Bjarni sagði…
Já þetta er mikið stuð. Á alveg eftir að fá mér rjóma en mamma gaf mér saltkjöt í kvöld. Jibbí
Bjarni sagði…
Já þetta er mikið stuð. Á alveg eftir að fá mér rjóma en mamma gaf mér saltkjöt í kvöld. Jibbí

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap