Viðgerðir

Hringdi á Höldur bílaverkstæði á mánudag og bað um tíma fyrir bílinn minn. Beiðni mín var að:

1.Smyrja hann
2.Losna við vélarljósið sem er búið að loga síðan þeir voru með hann síðast
3.Ég velti upp þeirri spurningu hvort það væri kominn tími á kertaskiptingu og hvort það gæti tengst vélarljósinu.
4.Bað þá að athuga með afhverju inniljósin eru ekki í lagi.
5.Bað þá í leiðinni að skipta um peru í framljósi.

Þegar ég kom nokkrum klukkutímum síðar höfðu þeir skipt um kerti, smurt bílinn og ekki komist að því hvað var að inniljósunum. En þeir voru rosalega góðir við mig og þrifu upp einhverjar leiðslur og raka sem hefði orðið vandamál seinna. Eitthvað "hefði" getað bilað í framtíðinni. Fyrir þetta rukkuðu þeir aðeins 43.000 kr. og ég er alveg í skýjunum yfir hvað þetta er ódýrt og í dag finnst mér ég eiginlega knúinn til að fara og færa þeim blóm og eitthvað. Fyrst þarf ég að velta því fyrir mér hvar ég get grafið upp slíkar fjárhæðir.

Þegar ég svo startaði bílnum kom melding í mælaborðinu um að það væri sprungin per í framljósi......

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já, það jafnast nú ekkert á við að vera tekinn í ósmurt...eða reyndar smurt líklegast...rassgatið svona í sumarbyrjun:) Allir á fjallahjólin og gefum skít í bílaiðnaðinn

kv Skarphéðinn
Nafnlaus sagði…
Gefum skít í bíla, gefum skít í fjallahjólin, og fáum okkur almennileg borgarhjól...
Bjarni sagði…
Já eða gefum skít í þetta allt og setjum af stað átakið "Skríðum í vinnuna".

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap