Opinberun Bjarnesar
Jæja ég sá að hún Þóra vinkona mín var að spyrja hvenær þetta gengi nú allt yfir hjá mér. Svara henni bara hér og nú og öðrum sem það vilja heyra. Ég varði verkefnið mitt í gær og þetta gekk líka svona ljómandi vel allt saman. Nú er ég bara að fínpússa einhver línubil og ditta að þessu afkvæmi mínu áður en ég prenta þetta í einhverju stærra upplagi. Það er sjálfsagt fjöldinn allur af Íslendingum sem bíður spenntur eftir að fá að lesa þetta. Nú tek ég mér frí fram að útskrift (14.júní) og mæti svo hingað upp í háskóla þann 16.júní og fer að vinna.
Annars er svo sem ekkert títt. Nema að mig langar til að fordæma Levis verslunina sem var að opna hér í bæ. Þar kosta gallaSTUTTbuxur 15.000kr, ef skálmarnar ná niður að skóm þá kosta þær yfirleitt um 18.000kr, skyrtur svona 12-15.000kr. og einu stuttermabolirnir sem þess virði væri að klæðast kosta 8.000kr. Ég held að þetta fyrirtæki reikni álagningu út frá breiddargráðum. Það væri gaman að vita hvað þetta góss myndi kosta í Grímsey.
Kveðja, Bjarni
Ps. Svo óska ég Þóru að sjálfsögðu til hamingju með sinn áfanga.

Ummæli
Bestu
Þóra