Óskarinn



Þó ég eigi að teljast upptekinn maður þá hef ég nú samt gefið mér tíma til að horfa á þær myndir sem voru tilnefndar í flokknum besta myndin á óskarsverðlaunahátíðinni. Eins og flestum er kunnugt þá hlaut myndin No country for old men þann titil. Ef maður skoðar svo hvað þessar myndir hafa skorað hjá lesendum imdb.com þá er listinn svona:

There will be blood #44
No country for old men #54
In to the wild #125
Juno #174
Atonement #kemst ekki á topp 250

# stendur fyrir sæti á topp 250 af bestu myndum allra tíma.

Ef ég ætti að raða þessum lista upp eftir mínu höfði þá væri Juno efst ásamt No country for old men. Get ekki gert upp á milli enda gerólíkar myndir þar á ferð. In to the wild fylgir fast á eftir þessum tveim. Ef það væri ekki fyrir Daniel Day Lewis þá mætti henda There will be blood út af þessum lista mín vegna. Góð mynd en frekar leiðinleg ef þið skiljið hvað ég meina. Ég hef gert 2 tilraunir á Atonment og sofnað í bæði skiptin enda ekki mikið fjör þar á ferð. Ég held ég finni mér konu áður en ég reyni að klára hana enda er of gay fyrir svona karlmenni eins og mig að horfa á þetta án þess að geta afsakað mig með því að konan hafi viljað sjá þetta. Lauma sér svo inn á klósett og skæla í laumi.

Það er ekki bara að Juno sé frábær mynd heldur er tónlistin úr henni frábær. Ég er búinn að láta hana ganga núna í 3 daga og hún léttir sannarlega lundina yfir þessum skrifum. Sannkölluð Feel Good Music. Ég er samt sannfærður að maður verði að sjá myndina fyrst áður en maður fer að hlusta. Þetta fylgist að sko....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já Bjarni ég er algjörlega sammála þér, bæði Juno og Into the Wild voru myndir sem ég bjóst ekki við neinu frá. En báðar eru þetta frábærar myndir og tónlistin einnig algjörlega frábær. Ég er einmitt búinn að láta Eddie Wedder ganga núna síðustu vikur, helber snilld.
No country for old men er einnig tær snilld að hætti Cohen bræðra.

Ég er hinsvegar ekki með tussu og því ekki þorað að kíkja á Atonement.

Juno kom mér mest á óvart mjög hefðbundin yfirskrift og handrit en tónlist og leikarar gera þessa mynd ódauðlega.

Góðar stundir
Nafnlaus sagði…
Gangi þér vel að skrifa Bjarni!

Vonandi sjáumst við í Mývatnsveit ef þú verður eitthvað á stjái þar í sumar.

Bestu kveðjur
Þóra

ps. Ég veit nú ekki hvort ég þori að horfa á þessa Atonement mynd eftir að hafa séð athugasemdina að ofan:)
Bjarni sagði…
He he, já takk fyrir það. Við sjáumst örugglega eitthvað ef þið verðið á ferðinni í Mývó.

Kv,Bj
Nafnlaus sagði…
af hverju er ekkert skrifað um myndina sem allir eru að tala um en ekki var tilnefnd til neinna verlauna. Þessi mynd er sem stendur með 7.6 í einkun á imdb og ef ekki væri fyrir homma og gamalmeni væri hún í sæti 1# þar með 9.8 í einkunn. Að sjálfsögðu er ég að tala um John Rambo sem er epísk stórmynd sem fjallar um einfara sem segir ekki margt og lætur verkin tala.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap