Brennunjálssaga

Samkvæmt mbl.is var kveikt í rusli í húsasundi við Snorrabraut í nótt. Ég þekki bara einn mann sem býr í nágrenninu og það hlýtur því að vera hann sem gerði þetta. Skarphéðinn hefur laumast með kveikjara frá Vífilsgötunni í skjóli nætur og tendrað elda hlægjandi og þannig látið hið sanna eðli Skútustaðabúa ná yfirtökum. Þeir eru allir brennuvargar, samanber Gylfa frænda hans sem brennir kindakúk allan sólahringinn og hlýtur að hafa kennt Skarphéðni þetta. Skarphéðinn er sennilega að hefna fyrir að hafa verið tekinn fyrir að fara yfir á rauðu ljósi einmitt á Snorrabraut ekki alls fyrir löngu. Það er sorglegt til þess að hugsa að góðir vinir eins og Skarphéðinn leiðist út í svona íkveikjur. Fyrir norðan sitja svo foreldrar hans grunlausir um að hann hafi eldfæri undir höndum. Hver selur KR-ing kveikjara? Ég ætla að hringja í hann í kvöld og koma fyrir hann vitinu og ef það tekst ekki tala ég við foreldra hans.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já datt mér ekki í hug, ég hef nefnilega orðið hans var í Sporthúsinu nokkuð oft og tekið eftir því þegar hann er að predika yfir líðnum. Hann gengur þar um og reynir að koma fólkinu í skilning um að Skútar séu líka fólk.
Það er bara fyrir löngu síðan búið að afsanna þá kenningu.

Heyrumst næst

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap