Um fjöllin arka piltar fjórir

Jæja börnin góð. Ég hef svo sem ekki margar fréttir að færa ykkur af mér sjálfum né öðrum bjánum. Hér í skóla hefur verið nokkuð mikið að gera að venju og ég er rétt að venjast tímabreytingunni frá Noregi. Ennþá er þó erfitt að vakna á morgnanna en það hefst þó allt með bolla af sterku kaffi,grófu salti, frosnu handklæði, leðurbelti, upptöku af Dýrunum í Hálsaskógi og viljastyrk. Í þessum töluðu orðum eru Stefán og Alban austur á fjöllum að ganga í kofa. Eftir lýsingum Stefáns hef ég ekki alveg áttað mig á því hvar þeir eru en þeim líður víst ágætlega. Þórður heyrði í þeim í morgun og voru þeir að leggja af stað aftur eftir kaldan nætursvefn í tjaldi. Ég og Þórður höldum svo til fjalla á morgun til að hitta þá kumpána. Stefni svo að því að vera kominn aftur til vinnu og við tölvu á laugardag. Þar sem ég er svo hagyrtur þá verð ég að láta fljóta með vísukorn.

Um fjöllin arka piltar fjórir
förin sækist þeim dável
Eigi drekka mikið bjórir
Andy mcDowell

Góðar stundir

Ummæli

Nafnlaus sagði…
HEHE þú færð 101 stig fyrir þessa vísu. Héðan í frá kalla ég þig Bjarni Pétur í Reynihlíð.
Nafnlaus sagði…
See here

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap