Shaun the Sheep

Ég verð að hæla Rúv alveg sérstaklega fyrir að hafa tekið til sýningar hina stórkostlegu þætti um hrútinn Hrein, Shaun the sheep. Þetta er eitthvað það albesta sjónvarpsefni sem ég hef komist yfir síðan Nick Knatterton var í imbanum. Uppátæki Hreins og félaga eru allt frá því að komast í bæinn og kaupa pizzu og út í að stela epplum af vondu svínunum í næstu girðingu. Ef þetta er ekki eitthvað til að stytta skammdegið þá veit ég ekki hvað gerir það.
Annars mæli ég með Bic rakvélum sem fást 10 í pakka með aloaVera- geli á 500 kall í Hagkaupum og Old Spice svitalyktaeyði sem endist í marga mánuði og er hættulegur fyrir nýrnaveika.
Fleira sem Bjarni trend- setter segir að sé dead on cool vetrartíska er m.a flest þau föt sem ég nota. Einnig er cool að haga sér eins og ég geri.
Skallagrímur J Sigfússon skaut upp kollinum í fréttunum í gær eins og gorkúla á skítahaug með bónaðan skallann og loðið fésið. Þar talaði hann meðal annars um ógnar- valdastjórn ríkisstjórnarinnar sem er að hans mati óstarfhæf. Hann segir stjórnarandstöðuna vera að stilla saman strengi sína fyrir komandi átök. Ég var farinn að halda að maðurinn væri dauður en svo er nú ekki, sem betur fer. Hrúturinn Hreinn og Skallagrímur eru menn mánaðrinns að mínu mati.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gott nafn á steingrím
hér eftir verður hann eingöngu kallaður skallagrímu j. sigfússon í munkaþverárstræti 30
Halldór sagði…
Þú verður líka að segja öllum hvar þú keyptir munkapeysuna þína.
Bjarni sagði…
Á hvaða lyfjum ertu? Heldurðu að ég fari að segja fólki hvar ég kaupi mína merkjavöru? Það getur apað upp stílinn minn (sem margir gera) en ég segi ekki nákvæmlega hvar ég versla hátískufötin eða hvað þau kosta. Hvað er annars af frétta af indjánatjaldinu þínu, ertu hættur að nota það?
Nafnlaus sagði…
Sendi það til djibúti ásamt hróa hattar skónum.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap