Póstur 111

Góðan dag.

Nú hef ég verið með einhver djöfullsins kvefskít í rúmlega viku og hef fengið mig fullsaddan af þessari vitleysu. Um helgina hef ég étið margfalda skammta af C-vítmíni, lýsisperlur, Herbalife, fullt af góðum mat og hvorki hreyft legg né lið. Síðasta hálmstráið var svo að fara í Hagkaup áðan og kaupa mér big-size grænmetisjús og hvítlaukstöflur sem að sögn fróðra manna lækna allt. Ef þetta fer ekki að lagast fljótlega þá.... þá get ég sennilega bara ekkert gert nema halda þessu áfram.

Annars er allt á kafi í snjó hérna á Akureyri og það sem ég hef afrekað í dag er að grafa út bílinn sem ég á að fara með til Seyðisfjarðar fyrir Hrafnhildi og Ragnar sem eru í Noregi. Smyrilline hefur seinkað för um eina viku til viðbótar og ég þarf því víst að halda áfram að bíða í rólegum heitunum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap