La Post #117


Góðan dag.

Ég hafði lofað Dóra því um daginn að setja inn færslu um fræga veiðiferð sem kennd er við skít. Nú hef ég fengið í hendurnar veiðidagbókina mína og fór að leita af þessari ferð en því miður skilaði það litlum árangri. Ég hef samt minnst á hana í fáum orðum og hljómar það svo:

Eins og sést þá var ég ekki nægilega duglegur að skrifa niður gæsa eða rjúpnaferðir síðasta árið. Seinasta gæsaár var lélegra en við vonuðumst til. Það sem helst ber að nefna utan við fyrsta daginn er ferð sem við fórum í tún þeirra Gautlendinga suðrá Ásum (neðan við ristahliðið). Þar skutum við 18 gæsir í of góðu veðri (ég, Jói og Dóri) og Dóri missti af öllu stuðinu því hann fór heim að skíta og varð það víðfrægt um alla sveit.

Ekki hef ég minnst meira á þennan góða túr sem farinn var haustið 2002 en ef ég man rétt þá vorum við komnir með 14 þegar Dóri kom aftur af kamrinum. Ódauðlegur veiðitúr með dauðlegri skitu fyrir suma.

Ég var að henda inn myndum úr Fjallaferðinni okkar kumpána. Þar sést berlega að við erum fífl.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Af þessu má læra að skíta með byssuna á lærunum frekar en að fara heim til þess.
Bjarni sagði…
Já það er nokkuð til í því. Veit ekki hvort veiðifélagarnir hefðu samt verið hrifnir. Ivan!! Bug off my blog

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap