Komnir af fjöllum

Ég hef þetta stutt í bili enda tímabundinn. Langaði samt að láta vita að við félagar erum komnir heim af fjöllum eftir vel heppnaða ferð. Ég er ekki með myndavélina á mér þannig að myndir verða að bíða. Ég tók reyndar ekki margar myndir en þær segja jú meira en mörg orð. Næst á dagskrá er að hringja í Smyril og athuga hvort bílinn minn sé ekki örugglega einhversstaðar á miðju ballarhafi á leið í mínar hendur. Ef svo er legg ég af stað um hádegi austur á Seyðisfjörð.

Hafið það gott, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap